Dæmalaust frábær

datt bara ekkert merkilegt í hug

14.12.2007 03:20:18 / Birna

NÝTT BLOG

Jæja púðarnir mínir þá er komin tími til að fara á líta á önnur mið. Er búin að stofna blog á 123.is svo endilega kíkkið á það. Er meira að segja svo klár að geta sett myndir inn þar:)

http://www.123.is/birna83 

kveðja ein í flutningum;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 00:43:40 / Birna

ÓGEÐSLEGA FLINK

Tókst að henda nokkrum myndum inná síðuna:haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 13:50:58 / Birna

Frá HORI til HELVÍTS:(

Reykjavík 27. Nóvember 2007

og bara 27 dagar í jól   

 

Ekki góður dagur:cry:

Við erum að tala um að ég er hund lasin, hef ekki verið svona veik MJÖG lengi og er alveg að verða vitlaus. Þetta byrjaði allt í fyrrinótt. Horið, hóstinn, hitinn og allur djöfulsins viðbjóðurinn lak yfir mig jafnt og þétt alla nóttina og til að bæta allt saman þá var ég að vinna. Ojj bara, Aumingja ég... er öll í hori frá toppi til táar:cry: Hef nottla nákvæmlega ekkert að gera, er orðin uppiskroppa með sjónvarpsefni, þrátt fyrir að Bjögga og Rölli séu með ógurlegt magn af þáttum og solleiðis í tölvunni.

Svona til að gera eitthvað þá fór ég að tékka með nám í félagsliðanum eftir áramót sem leiddi síðan til þess að ég fór að hugsa um þau fáránlegu laun sem stuðningsfulltrúar á sambýlum eru með. Nei annars mér er drullu sama með hvaða laun aðrir eru, ÉG er með FÁRÁNLEG LAUN. 18. ára manneskja með þriggja mánáða reynslu í þessum geira er með um 2000 krónum lægri laun enm ég á mánuðu sem er ég búin að vinna á sambýli í 4 ár og sjö mánuði, sem eru 55 mánuðir:klikk: Var orðin mjög æst yfir þessu öllu svo ég aus reiði minni yfir Elvu greyið, síðan yfir konu grey á svæðisskrifstofunni og fjárssýslu ríkissins, þaðan hringdi ég í sfr og þegar ég hringdi síðan aftur í ssr þá var ég orðin alveg urrandi vitlaus. Fékk þau svör sem sagt á öllum stöðum að ég væri nú á réttum launum og fleh fleh beið bara eftir því að þessi fífl myndu segja mér að þetta væri nú bara hin fínustu laun, en þau gerðu það nú ekki blessuð greyin ég vil heldur ekki hugsa þá hugsun til enda því ég sæti sjálfsagt fangagæslu núna eða væri eftirlýst fyrir hroðaverknað8| 

En allavega á sunnudaginn lögðum við Elva og Bjögga upp í konfektgerðar og piparkökuhúsa ævintýri. Byrjuðum í konfekt gerð um hádegi, gerðum einar fjórar tegundir og svo skreyttum við þessi fínu piparkökuhús. Vorum að til að verða miðnættis. Piparkökuhúsið mitt varð eins og ég bjóst við, ekkert sérstaklega fallegt. Er heldur ekki þekkt fyrir mikla listræna tilburði og ég held án efa að þetta sé eitt ljótasta piparkökuhús sem gert hefur verið. Við erum að tala um að það er eins og það hafi verið ælt á þakið á því;)

Við Róbert erum búin að fresta norður ferðinni um eina helgi förum sem sagt helgina 7-9 des Hlakkar mikið til að komast til múttu og svona. Erum síðan að fara á jólahlaðborð hjá ormson næstu helgi, ef ég verð þá búin að losna við horið þar að segja:S

Jæja þetta er nóg í bili, ætla að fara að leggja mig :|

Jæja hori kveður að sinni

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 02:24:33 / Birna

smá röfl...:)

Jæja staður og stund....

Hólmasund og klukkan er há nótt L

Og ég er að vinnaL

Elva var reyndar að fara útúr dyrunum við vorum í spekuleringum hvernig við ættum að fara breyta og skreita hérna í sundinuJ, fengum það djobb að gera eitthvað fínt og flott við ganginn en við vorum komnar útí það að hugsa hvernig við gætum breytt öllu húsinu, ætluðum að fá styrki í sjónvarpskaup ofl. shit hvað maður getur verið bilaðurJ

Hún er sem sagt komin heim frá New York og íbúðin var heil þegar hún kom;) En jii vitiði hvern hún sá þarna úti??? Nei sæta sæta gæjan í Step upJ  

Allavega þá er ég flutt af Hringbrautinni, var eiginlega alveg búin að fá nóg J Flutti til Bjöggu og Rölla bara æði, hef það eiginlega of gott þar og er hálf hrædd um að vilja aldrei fara út aftur, ég hefði allavegana stórar áhyggjur af að losna aldrei við mig ef ég væri þauJ nei nei segi sona J En já þau eru æðiJ 

Er sem sagt byrjuð á næturvöktunum, fíla það svona ágætlega. Svefninn er reyndar í focki en ég held þetta venjist nú... Væri snellí að skella sér í skóla eftir áramót og nota allan frítíman á næturnar til að læraJ Pæling.... 

Árshátíð SSR var seinustu helgi... Það var nú bara þræl gaman . Mikið hlegið og mikið drukkið. Byrjuðum í kampavínu hjá Elvu um 5. Keypti mér á fimmtudaginn ægilega sætan kjól fyrir kveldið og svo gaf múttan mér kápu í jólagjöf sem ég var í. Sæti bossinn minn greiddi mér og málaði svo ég var svaka skvísJ Árshátiðin var haldin niðri bæ á einhverjum stað sem ég man ekkert hvað heitir, allavega þá reddaði snillingurinn ég akstri í bæinn. Fórum sem sagt á árshátíðina með ferðaþjónustu fatlaðra sem mér finnst nú bara klassi skoJ En kvöldið var mjög skemmtó, unnum meira að segja “GLER skóinn” Verðlaun fyrir bestu mætingu, hefði fundist við eiga skilið að fá líka verðlaun fyrir að vera áberandi fallegasta og skemmtilegasta fólkið á staðnum líka, því miður voru engin þannig verðlaun veitt svo við létum skóinn dugaJ Hljómsveitin var nú ekki upp á marga fiska, reyndar spilaði hún fyrir mig karteflugarðana svo hún fékk + fyrir það en þegar hún var farin að spila Halelúja þá fengum við nóg og létum okkur hverfa. Hópurinn hélt sér nánast, við skelltum okkur á Rex. Þar var ég næstum búin að drepa mig, ein fór í sleik við pólverja og einn ældi útí horni J

En allavega gott kvöldJ 

Búin að kaupa velflestar jólagjafirnar

og pakka þeim inn

og líka fyrir múttu

Dugleg, ha ?? 

Jæja er svona varla að nenna þessu, er svöng og þreytt, get lítið gert í þreytunni annað en gengið um gólf og reynt að vakna ( þreif yfirmig í gær) en ég get gert eitthvað í svengdinni,,, ætla fara fá mér í gogginnJ 

Endilega drullist til að kvitta sykurhnoðrar 

Kveðja Birna


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 00:54:32 / Birna

frá uppsögnum til lásasmiða

Jæja þá er maður fluttur tímabundið út af Hringbrautinni og sestur að hjá Elvu í tæpa viku. Daman skellti sér til New York og minns er að passa kisuna hennar hana Emmu:) Ég veit að það er ljótt að vera afbrýðisamur en ég bara ræð ekki við mig, MÉR LANGAR SVO MIKIÐ TIL USA:cry: jæja kanski bara næst. Þetta byrjaði sem sagt kanski ekkert alltof vel hjá okkur Emmu því í fyrsta lagi þegar ég kom heim í gær með búslóðina þá hélt ég strax að ég væri búin að tína kisa, leitaði útum allt hús, undir rúmmi og sófa og já bara alls staðar.. fékk nánast taugaáfall það rétt slapp þegar ég sá einhverja hreyfingu undir rúmteppinu og þá var daman þar mér til mikillar hamingju og gleði:D Svo í kvöld tókst mér að læsa mig úti framá gangi svo ég mátti kalla á lásasmið sem kostaði mig 5000 kall alveg ótrúleg.

 

Ég og bangsinn erum byrjuð aftur saman ægileg hamingja þar í gangiJ

 

Af vinnumálum er það að frétta að ég sagði upp á föstudaginn, endaði í því að breyta bara um vaktir,,, Verð sem sagt á næturvöktum frá sunnudegi til fimmtudags aðra hvora viku, vikuna á móti verð ég á morgunvöktum á mánudögum og föstudögum og svo vinn ég eina helgi í mánuði frá 9-21 svo ég er bara alveg glimmrandi sáttJ

 

Eins mikið og það er búiða að vera gaman (en líka þokkalega erfitt) að búa á Hringbrautinni þá erum við Kata búnar að taka þá ákvörðun að flytja út saman um áramótin. Leita hér með að 3. herbergja íbúð á svæði 105 á sanngjörnu verðiJ

 

Úff var að fá sms frá Elvu ég vona að hún stökkvi ekki upp í næstu vél þegar ég sendi henni SÖGUNA AF ÞVÍ hvernig við Emma erum búnar að hafa þaðJ nei nei;)

Jæja held maður ætti að fara að sofa í hausinn á sér, þarf að vakna snemma í fyrró, síðan erum við Ástdís að spá í því að skella okkur á Palla annað kvöld:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 11:06:07 / Birna

Haustið komið

Hæ hæ hvað segja púðar þá???

Allavega lítið að frétta hérna úr ævintýralandi, sumarfríið búið og byrjuð að vinna á fullu aftur. Reyndar hið besta mál og farin að taka mig á eftir sukk og svínarí sumarsins. Er sem sagt byrjuð á morgunvöktum sem þýðir að ég er búin klukkan 4 á daginn sem er alveg frábært:D Reyndar er þessi rigning að gera mig bilaða, ætti kanski að læra að þola hana þar sem maður býr í reykjarvík:)

Gulla og Hulda komu suður um daginn og það var æði að hitta þær (mættu samt alveg koma oftar) svo skellti ég mer norður í sólahring þar seinustu helgi, okkur mömmu leiddumst báðum svo ég ákvað að kíkja í kaffi:)

Ég er komin út á markaðinn aftur, sem þíðir að ég þarf bara að hugsa um rassgatið á sjálfri mér núna sem hefur yfirleitt hentað mér mjög vel, mig grunar að það sé ekkert það auðveldasta í heimi að vera í sambandi með mér, solltið erfið :haha: Þannig það er um að gera að rífa sig upp á rassgatinu og gera eitthvað snellí;) ég er ti dæmis byrjuð að lesa aðra bókina síðan ég kláraði tíundabekk. Las einhver jólin barn að eilífu og nú er ég komin í að lesa Leyndarmálið, á að vera eitthvað voða snellí (mútta allavega trúir á þetta)

Ætla að fara skella mér á norðurlandið fljótlega, við Elva og Ingibjörg ætlum að fara í helgarferð og skella okkur í pottinn hjá múttu í leiðinni, þurftum samt að fara ákveða dagsetningu stelpur svo Elva verði ekki bókuð:haha: Já og Elva kanski finnum við draumaprinsinn hehe (ólíklegt)

Fór í vax og í plokkun og litun til Ástdísar á mánudaginn svo í neglur á þriðjudaginn svo maður er orðin algjör skvís, ekki enþá byrjuð í ræktinni en ég hef farið í einn göngutúr (það er nú allavega eitthvað;)8|

Jæja hef ekkert sérlega mikið að segja svo ég kveð bili, gera eitthvað snellí þar til ég mæti í vinnuna klukkan 15.

kiss og kossar 

Birna 


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 12:36:49 / Birna

Í sumarfríi :)

Jæja þá er sumarfríið senn á enda og það búið að vera alveg magnað:haha: Á mánudaginn tekur síðan alvaran við og ég mæti til vinnu, það verður nú bara ágætt:D Búið að vera á flakki allan mánuðinn. Fór á þjóðhátíð, Fiskidaginn mikla á Dalvík ofl.

Sumarfríið byrjaði 1. ágúst allt fór á fullt í að taka sig til fyrir eyjar:)

Um kvöldið grilluðum við öll heima og svo skelltum við okkur, ég, Róbert og Didda á Gaukinn á Magna og Toby það var voða stuð og góð upphitun fyrir eyjar8)

Eyjar voru æði:)  Þrátt fyrir ofsa hvassveður mestan tímann. Gerðum nebbla þau mistök að tjalda á tjaldstæðinu við Þórsheimilið í staðinn fyrir inní dal (þar sem veðrið var mun betra) Sverrir og Stebbi voru með tjaldvagninn hans Sverris, Fortjaldið fór til fjandans á laugardagskvöldinu í þeim 32 metrum á sek. sem voru svo það var tekið niður. Tjaldið Magga og Diddu Rifnaði í kássu og það fauk útí veður og vind en það var ótrúlegt hvað tjaldið okkar Róberts stóð. En þetta var bara ævintýri :haha: Mikið drukkið, mikið stuð og mikið gaman (yfirleitt byrjað í tjaldvagninum að djúsa heitt og gott hehe)  en hér er smá frá Eyjum.........

Á fimmtudeginum var haldið á stað til Þorlákshafnar í blíðskapaveðri munaði reyndar litlu að við næðum ekki Herjólfi og vil ég kenna Róbert alfarið um það8) Lilja sykurpúði náði í okkur á bryggjuna um 15 í eyjuinni góðu og við Gistum hjá henni og Jóa um kvöldið:haha:

Á fimmtudagskvöldinu var party í bústaðnum hjá Gullu og þeim, svaka stuð, þar var hellingur af fólki... Húkkaraballið:!::!: ekkert spes alltof ungir krakkar og svo kom ofsa veður með rigningu og roki algjör vibbi þannig ég var komin sem sagt komin bara snemma í bólið, EKKI keppnis:$

Vaknaði hress og kát á föstudagshádegið hehe og tókum rölltið um bæinn. Tjölduðum og byrjuðum að drekka, Birnan var solltið þreytt þarna um tíu leytið og ákvað að leggja sig í hálftíma, þrátt fyrir að mikið hafi verið reynt að vekja mig þá virkaði það ekki. Ég vaknaði síðan um hálf þrjú til í tuskið hehe missti af Jónsa, Magna, Toby og Rottweiler  . Rölti niðrí dal og hitti bróðurinn minn í helvíti góðu ásigkomulega hehe bara fyndið. Komum heim í tjald eitthvað um 8 og vöktum Sverri og Diddu. Þau byrjuðu auðvitað í bjórnum með mér og þegar ég loksins náði að senda Róbert að sofa þá héldum við í sundleiðangur:) Kyntumst þar alveg mögnuðum Dúdda sem varð samstundist besti vinur okkar sverris. Allavega góð sundferð þetta:)

Laugardagskvöldið var æði:) Jónsi bara sætur hálf nakinn í fjaðradressi hehe, Vorum með brúarsöng, gítar og læti og litlu brúnni í dalnum hehe bara gaman:)

Sunnudagurinn var alveg í þynku en Sunnudagskvöldið var alveg æði:haha::haha::haha:

Bubbinn minn, Árni Jonsen með brekkusöngin, blysin og flugeldasýningin voru æði. Auðvitað mættu síðan Magni, Toby og Jóns bara púðar :haha::haha: Allavega ógó gaman. Þegar við vorum síðan ferðbúin uppá tjaldsvæði og sátum á hringtorginu þá hittum við Gullu og  Jenný. Ákváðum svo að skella okkur í pottinn hjá Gullu.

Sem sagt á mánudagsmorgninum þá sátum við Gullan í heita pottinum með bjór í hönd frá 8 - 13.30 við erum að tala um 5 og hálfan tíma og það sem við vorum fyndnar það var ekkert lítið. Vorum með sömu 5 brandaranna sem fóru í hringi og við grenjuðum úr hlátri, Greyið Maggi Villi og Róbert,,,, brandararnir voru allir á þeirra kostnað:) Hemmi kom síðan og veitti okkur félagsskap og var nú hálf fyndinn líka:haha:  Þegar við loksins komum okkur uppúr þá fórum við Gulla, Jón Elvar og Maggi og fengum okkur að borða og svo var farið að sofa í smá stund. Ég nottla var fárveik þegar ég vaknaði og þá þurftum við að fara taka saman dótið okkar því við ætluðum að reyna að komast heim með næturferðinni, gat ekki hugsað mér að vera þarna lengur miðað við heilsufar:) Maggi og Róbert stóðu síðan í 3 tíma í biðröð til að fá miða heim handa okkur OG við komumst:haha:

Vorum komin heim á Hringbrautina um 6 á þriðjudagsmorgninum og það var GOTT:lol:  En allavega stórkostleg helgi og ég hvet alla til að skella sér á Þjóðhátíð í eyjum.. það er bókað að ég fer að ári:haha:

Nokkrir góðir punktar:

Maggi Villa var skotinn í typpið með loftbyssu

Ég fór í sleik við kind

og Róbert skildi ekkert í því hvernig ég komst svo nálægt henni

Didda kúkaði í hendina á sér

Róbert er smeikur við sveppasýkingu

Sumir lögðu sig í vegakanti

Við Gulla ætlum að fara í klippingu til Hadda Rakara

pikkupp lína helgarinnar:

Þú hefur ekki prófað neitt fyrr en þú hefur prófað Maggan:haha:

 

FISKIDAGURINN:

Það var mjög gaman, öll famelían samankomin á Dalvík, vorum mest hjá Svölu frænku en við, ég , Róbert og mútta gistum hjá Gígju.

Á fimmtudagskvöldinu var hitað upp fyrir helgina (kanski aðeins og mikið;) og ég kynnti mömmu fyrir Mikka vini mínum(Hún kunni vel við hann)

Súpukvöldið var frábært, Svala og Gústi voru með þessa dýrindis humarsúpu ( bestu í bænum) og það voru um 600 gestir sem komu til þeirra PÆLIÐI:haha: Það var síðan voða party og við enduðum á Bakaríinu gaman gaman:)

Á laugardeginum fórum við Róbert með grísina alla í sund og skelltum okkur síðan inná Akureyri í matarboð til Söndru og Jóa. Það var boðið uppá Læri og allt með því klikkað gott. Á meðan á matarboðinu stóð var svo kjötsúpu veisla hjá Svölu og hellingur af liði þar. Við mættum beint í partyíð og svo var haldið niðra bryggju í bryggju söng. Það var rosa gaman og þetta endaði í heljarinnar flugelda sýningu:haha: Vorum síðan bara hjá Svölu og Gústa um kvöldið, svaka bílskúrsparty sungið og dansað:haha:

Get ekki sagt að heilsan hafi verið uppá sitt besta þegar við lögðum af stað í borgina daginn eftir, en það var samt gott að komast heim:haha:

Fékk djamm pásu fram að föstudeginum eftir, þá kíktum við Linda í bæinn, búnar að drekka slatta að hvítu:)

Síðan daddara kom menningarnótt:haha: Og það var innflutningsparty hjá Írisi mjög gaman þar:) Haldiði ekki bara að Bjöggana hafi dottið íÞAÐ þetta er eitthvað sem allir verða að upplifa að sjá eruði að grínast með sætu eða???

19. ágúst. sunnudagur

Lagt af stað norður og aldrei þessu vant ÞUNN ( gúggú, æi sumarfrí hehe) Búið að búa um okkur Róbert í skúrnum hjá afa og ömmu og við erum búin að hafa það mjög kósi. Fórum eina nótt í bústað með Óla og krökkunum, búin að fara í bíó, dottið nokkrum sinnum í það, innflutnigsparty hjá Gullu síðustu helgi og svo Akureyrarvaka, búin að éta á okkur gat og já bara eitthvað svona sem maður á að gera í sumarfríi:) Róbert fór síðan suður í gær og ég er enn fyrir norðan. Ætla fara suður með Magga á föstudaginn, hann er að fara í fatainnkaup og mér er farið að klæja í puttana hehe. Þarf að henda Diddu út úr herberginu mínu hún er búin að vera þar síðan ég fór norður því buddan er heimilislaus8|

Næsta laugardag ætlum við Elva og Bjögga að skella okkur á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Ég veit reyndar ekki alveg útá hvað þetta gengur en búin að heyra að þetta sé voða skemmtó. Hef reyndar oft ætlað að fara en aldrei drifið mig svo það er best að skella sér núna:) Jæja held að þetta sé alveg orðið ágætt...  Og búin að röfla alveg nóg... Veriði nú dugleg að kvitta púðar:)

Prinsessa norðursins byður að heilsa í bili

KISS KISS


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 10:31:08 / Birna

Síðan seinast :)

Jæja orðnir rúmir 2 mánuðir síðan ég bloggaði, er orðin heldur slöpp við þetta en allavega best að bæta úr því:)

Já ég fór norður til mömmu þarna í mai og það var alveg æði. Stoppaði í tvær vikur og hafði það hrikalega kósí;) Húsið hennar múttu er alveg æði bara, ekkert smá lítið og sætt. Núna er reyndar kominn pallur sem ég hef ekki séð og hún er reyndar enn að bíða eftir heitapottinum sem átti að koma í byrjun júní. Ég væri orðin vitlaus en kellan tekur þessu bara með jafnaðar geði:haha:

Mæjan mín kom svo norður til mín fyrstu helgina í júní eftir mikinn söknuð. Það var nottla ekkert smá gaman að sá hana og við skemmtum okkur alveg konunglega. Gerðumst túristar, létum Magga skutla okkur blindfullum útum allan bæ eftir djamm að taka myndir af okkur við helstu staði bæjarins svo sem Brynju og fleira... Kemur allt saman í ljós þegar við fáum myndirnar úr framköllun (örugglega hrikalegar) Mamma var síðan með innflutnings party á laugardagskvöldinu og það var svaka stuð. Spreng fyllti litla húsið sitt af alls kyns fólki.... En þetta var bara rosa gaman allt saman. Keyrðum síðan suður í menninguna saman á sunnudeginum eftir helvíti góða og skemmtó helgi:haha:

Loksins á mánudeginum 4. júní kom að spáni:) Vorum í viku... mikið verslað, fórum í tívolí, dýragarð og lágum í sólinni:haha: Vorum reyndar ekkert brún þegar heim var komið, við Elva gerðum smt heiðarlega tilraun til að auka brúnkuna með að versla olíu og brúnkutöflur næst seinasta daginn en það gerði lítið gagn. Kom samt a gagni hér heima en góða veðrið í borginni bjargaði aðeins litnum hjá manni. Enda búið að vera æðislegt veður, man nú bara ekki eftir svona sumri síðan.... nei aldrei:haha: En allavega á heildina litið þá gékk þessi ferð bara rosalega vel, sérstaklega svona eftir á:) Þetta var mjög gaman en líka á móti mjög erfitt. Verð að segja að það hafi verið solltil þreyta næstu daga eftir að við komum heim;)

Srax á miðvikudeginum eftir heimferð byrjaði svo vinnan á fullu og þá meina ég fullu. Er í 55% vinnu í Lyngási og 95% í Hólmó svo það mætti segja að ég væri að vinna frá morgni til kvölds. yfirleytt frá 11-23 stuð stuð:S Er farin að telja niður í sumarfrí, bara 7 vaktir eftir í Hólmasundi og 8 í Lyngási:) GET EKKI BEÐIÐ :haha:

En annað..... ÞAð fer að koma að ÞJÓÐHÁTÍÐ Jíbbí:haha::haha::haha::haha:

Fer með Gullu til eyja á miðvikudeginum og gisti með henni í bústað í eina nótt... Svo kemur púðinn minn á fimtudeginum, Mæja og Maggi á aðfaranótt föstudags síðan ásamt fullt af öðum. Er samt að bíða eftir að Didda panti sér miðann,  sinn, því hún ER að koma það er BARA ekkert öðruvísi;) En þetta verður æðó. Bubbi, Jónsi sæti, á móti sól og fleiri púðar:haha:

ALLIR AÐ DRÍFA SIG...LÍKA ÍRIS

 

Er ekki alveg búin að plana sumarfríið en eftir þjóðhátið verður stefnan tekin á Fiskidaginn mikla á Dalvík... ALLIR LÍKA AÐ DRÍFA SIG Á FISKIDAGINN

ÓGÓ GAMAN

Ætla síðan líka að vera í nokkra daga hjá mömmu og sonna en annars er allt óráði, langar geðveikt að ferðast allavega eitthvað smá... Þar sem ég hef ekki séð mikinn hluta af þessu blessaða landi okkar þá væri sniðugt að láta verða að því að skoða ekki nema þá bara smá part fyrst maður hefur tíma til (hef nebbla aldrei aður farið sumarfrí) :haha:

Jæja held að það sé best að hætta þessari vitleysu..... Hafið þið það sem best

Prinsessan kveður í bili BæÓ

:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 03:26:30 / Birna

Hitt og þetta en aðalega þetta...

Jú sælir púðar hvað syngur???

Fínt að frétta héðan frá Hringbrautinni, öll dýrin í skóginum vinir og sonna;)

Já heyrðu langt síðan ég hef nennt að blogga en ýmsilegt gerst síðan seinast... Ferðin til Cambridge var æði :lol: Fórum sem sagt flest á Lyngási og vorum frá miðvikudegi til sunnudags... Skoðuðum ýmsar stofnanir og það var mjög skemmtó (flest allavega), það var auðvitað verslað helling og svo var eitthvað um djamm líka;) Við lentum í dýrindis veðri og já þetta var bara æðó:haha::haha::haha::haha::haha:

Hvað hef ég síðan gert meira af mér??? Jú var veik það sprakk svona skemmtilega í mér hljóðhimnan svo ég er á bullandi pensílíni hreinlega æðislegt bara :cry::cry:

Er búin að vera með bullandi heimþrá undanfarið, alveg að sakna mömmu en ég held samt að þetta sé forvitni að stórum hluta, langar svo ægilega að sjá hvernig húsið lítur út.. ég meina ég erfi þetta nú:haha: djók nei mér langar bara svo að sjá hvað kelllan er búin að gera kósí. Mér langar nottla ekkert smotterí norður um helgina en ég verð að vinna hluta af henni svo ég kemst lítið. en ég fer þarna 21. mai þá er ég í 8 daga fríi og svo ætlum við Mæja líka að fara fyrstu helgina í júní sem er einmitt líka sjómannadags helgin og svaka eyrar partý hjá múttu:haha:

En já á ég að segja ykkur söguna af því??? átti frekar furðó símtal í dag... Það var sem sagt hringt í mig rúmlega fimm í morgun með leyninúmeri.... Og ég svara svona ógó hress og kolrugluð eins og ég get verið uppá mitt besta snemma á morgnanna... þá var það Gulla í Guadimala

B- Birna Sæta G- Gulla asni

B-Hallóóó

G- Hæ

B-Hæ??

G-Hvað segiru?

B-Fínt???

G-Hvað ertað gera?

B-Hvað helduru????

G-hahaha heyrðu má ég koma í kaffi?

B-löööööng þögn .... þegiðu? Hvar ertu ?

G-Að leggja af stað frá Keflavíkurflugvelli...

Haldiði að þetta sé hálviti, búin að ljúga alla kjaft fulla að hún komi ekki heim fyrr en um mánaðarmótin en nei nei8| Ég hugsaði samt með mér þegar ég var að keyra inná planið hjá BSÍ hvort það væri einhver hrekkjudagur þarna útí rassgati og var orðin hálf pirruð og farin að gruna að Gellan væri að ljúga að mér og ætlaði aldrei að tala við hana aftur en nei púðinn minn kom og ég var svo obbsalega ánægð að sjá hana:haha::haha:

 

En já 10. mai í dag:| pabbi hefði átt afmæli, 46 ára kallinn8| Maður er alltaf eitthvað hálf skrítinn á svona dögum furðulegt nokk:$ eða kanski ekkert furðulegt:) Ég fer samt alltaf í einhverjar skrítnar pælingar og er svona hálf meyr... allavega enginn harðjaxl;) En jújú sona er þetta. En shit hvað klukkan er orðin margt og það er ekkert eðlilegt hvað ég er orðin þreytt enda búin að vera vakandi síðan 5.30 eða eitthvað:D Best að fara koma sér í bólið svo maður verði ferskur á Lyngó á morgun;)

Allavega sætasti púðinn kveður að sinni... Lifið heil:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 02:25:09 / Birna

Súsum lítið að frétta en þetta er það helsta;)

 

  • Jæja er í góðu yfirlæti hjá múttu á norðurlandinu... Kom á föstudaginnog ætlaði að hjálpa henni um helgina, við höfum reindar ekkert verið alltof duglegar en ég spítti nú aðeins í lófana í kvöld... Kellan fær nebblaafhent á morgun og ég er svo hrillilega spennt:)
  • Ætla að kæra Vélsmiðjunna:!::!::!: Tókst að stórslasa mig þar á föstudagskvöldið... Út á miðju gólfi er einhver helvítans trappa eða stallur eða eitthvað sem maður er kanski ekkert alltaf að muna eftir:cry:
  • Var í fermingarveislu í dag úff það er ekki það skemtilegasta sem ég geri8)
  • HEHE er í 12 DAGA fríi, þvílík sæla og búin að vinna allt af mér:) og þegar ég byrja að vinna aftur þá vinn ég í 3 daga og fer síðan í 5 daga helgafrí:haha:
  • Þurfti að borga 10 ÞÚSUND og 100 HUNDRAÐ krónur fyrir vegabréf DÍSES
  • Cambridge á miðvikudaginn og hlakkar ekkert smá til
  • Fer suður á þriðjudaginn, verð að muna að ná í vegabréfið mitt8|
  • Heyrðu já... Við Mæja erum búnar að fatta af hverju við eigum ekki kærasta:!::!: Við erum hreinlega OF fallegar... Þetta er bara vandamál, við erum það sætar að strákar þora ekki að tala við okkur og bara hræðast alla þessa fegurð:$ En við erum svona að sætta okkur við þetta en erum stór hissa á því að vera ekki búnar að fatta þetta fyrr:haha:
  • Já Óli frændi á afmæli í dag,,, spurning að fara plana jarðarförina aldurinn er orðinn svo rosalegur8|ohh ég er svo fyndin
  • Ég er að pæla í að fara skipta um blog síðu og fara yfir í 123.is Íris var að skipta og líkar það held ég bara helvíti vel8|
  • Jæja heldmaður ætti að fara skella sér í bólið svo maður verði hress í fyrramálið.... En jæja snúllur veriði nú dugleg að kvitta:haha:
Kærar kveðjur úr góðaveðrinu á norðurlandi
Birna Bjöss 

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 23:23:51 / Birna

HALLÓ

Lúðar DRULLISTI til að kvitta:lol:


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 01:02:09 / Birna

Þá var sjónvarpsmarkaðurinn skárri en vörutorg...

  • Nýjustu fréttir......

  • Hata Vörutorg.....:evil: Eruði að grínast? þetta er hrillingur og hvað ætli sé að kynninum???.... Ég gæti soðið uppúr þegar ég kveiki á imbanum og þetta helvíti er í sjónvarpinu... En verð að fá mér sona brauðkassa... Hann er nebbla þannig gerður að það má líka setja hann inní ískáp... Og snilldin er sú að þessi kassi gengur líka fyrir batteríum, svo ég get farið með hann í veiðiferðina og fleira:klikk: pantið ykkur sona númerið er 5173030 :!::!:

  • OK.:!::!::!: en annað....

  • Búin með skattaskýsluna og búin að ýta á senda... gott gott 

  • Er með vott af lungnabólgu geðveikt spennó

  • Mútta er búin að kaupa sér lítið sætt hús á Eyrinni og flytur víst ekki til mín í borgina:klikk: En samt frábært,, Eyrar draumurinn rættistJ Til hamingju með Það kjúttí;)
  • Er sem sagt að fara norður um helgina að hjálpa henni að pakka niður... Ætla taka til minnar ráðar og henda og henda...Algjör veislaJ
  • Síðan er keilumót hjá SSR annaðkvöld... Við Hólmararnir ætlum að taka hin liðin í bakaríið... Versta að ég er að drepast í öxlinni svo ef frammistaða mín verður ekki góð þá er það helv... öxlinni að
  • Ákváðum í kvöld að fá okkur froska.... ótrúlega sniðugt, Sverri langar samt í pírana fiska en við dömur erum ekkert alltof hrifnar af því, nema þá ef hann myndi þrífa búrið sjálfur en það væri ólíklegt:D
  • Mér á annað borð langar geggjað í trampólín en það hefur ekkert fengið alltof góðar viðtökur,,, ég meina erum með fínan garð og síðan er þetta svo góð hreyfing;)
  • En hér með óska ég eftir trampólíni... Helst ókeypis:haha:                 

Annars er lítið annað að frétta... ætla fara lúlla .... Ble ble


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 02:44:00 / Birna

Nýjustu fréttir að handan???

Jæja held það sé kominn tími í að blogga eitthvað smotterí... maður er víst alltaf að röfla í öðrum sem eru ekki að standa sig í stykkinu þannig það væri sniðugt að reyna gera það sjálfur ( Íris???) jú og Elva:D

Þetta er svona það helsta sem hefur á daga mína drifið undanfarið...... 

  • Varð 24. ára gömul8| 
  • Hélt uppá afmælið mitt... það tókst nú bara helvíti vel og ég vona að sem flestir hafi skemmt sér sem best... Nágrannarnir voru ekki alveg í stuðinu og siguðu lögreglunni á okkur... Hún var reyndar hin hressasta og Mæja (sem mætti ÉKKI í TIGER) heillaði þá alveg uppúr skónum (eða annan allavega) og fóru þeir bara glaðir í bragði í burtu mjög fljótlega... Vildu ekki einu sinni þiggja einn kaffi bolla:lol:
  • Ég nottla var í kjólnum sem ég keypti í spútnik og með hárkollu frá Bjöggu Löggu algjör gella;) En var reyndar spurð að því hvort ég væri karlmaður með hárkollu niðrí bæ8| En allavega fór þetta á þann veginn að það mátti kalla til dyravörð og þá var það ekki mér að kenna... Heldur brosti ég og gaf gæjanum puttan og hann tjúllaðist??? Hann var að spyrja hvort ég væri karlmaður??? Hefði frekar haldið að ég hefði mátt æsa mig en nóg um það... síðan fann ég 500 kall:haha:
  • Ltili brói kom notla suður þessa helgi.. skil ekki en af hverju hann var ekki í Berlín en mikið hlít ég þá að vera frábær;) En mjög gott að sjá litla snúllann:haha:
  • Eftir helgina lá síðan leiðin norður á land og áfangastaðurinn var Akureyrin sjálf... Lá þar í leti á Hótel múttu og hafði það kósí en hef samt ekki hugsað mér að fara aftur þangað fyrr en í sumar e-ð
  • Síðan á Laugardaginn þá átti Elvan afmæli,,, það var nú bara mjög gaman:haha:, var nú samt ekkert í miklum djammhugleiðingum svo ég skellti mér bara heim í bólið þegar liðið fór niðrí bæ... 8|8|8|8|, en það væri sniðugt að halda annan í afmæli á föstudaginn langa Ha Elva,,, þú beilaðir á mér og ég á þér við kanski drífum okkur í bæinn þá bara ??gamla :haha:
  • Múttan er nú búin að selja íbúðina og er að huga á kaupum á annarri... ég samt er að gæla við það að hún flytji hingað til mín en þá þyrfti nú að gerast eitthvað stórkostlega mikið...:evil: En jújú hún ræður víst:S
  • Annars er nú ekkert mikið að frétta... Bara búin að vera vinna á fullu, þarf víst að eignast einhverja peninga áður en ég fer út... En það fer nú bara að líða að fyrri ferðinni förum til Cainbrights ( ekki hugmynd hvernig maður skrifar það):haha: 18. apríl og hlakkar ekkert smá til... Við Mæja erum sona að hugleiða það að fara í smá road trip til London á laugardeginum og versla... en maður veit aldrei hvert landið leiðir mann:haha:
  • Jæja held að það sé best að fara hætta þessu bulli og koma sér í háttinn er svo gjörsamlega búin að snúa sólarhringnum við en ég kenni alfarið hósta og hori um það....:klikk:
  • En allavega negulnaglarnir mínir muið að kvitta... svo væri gaman að fá send ljóð hérna inn og sonna:D

En allavegana kveður Birnan að sinni kiss kiss


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 02:42:35 / Birna

Afmæli, Norðurferð og tippatott

Jæja ekki sólarhringur í að maður verði afmælis prinsessa...

 Er auðvitað búin að vera telja niður dagana og núna má þetta bara fara bresta á því allt fer að verða reddí fyrir daginn. Var að leggja lokahönd á að sjæna íbúðina og það er líka eins gott að það verði gengið um þangað til því annars geng ég af göflunum:klikk: Það er nottla búið að plana þvílíkt teiti á laugardagskvöldið...

Ætla bjóða stelpunum í mat en það verður nú bara eitthvað létt og þægilegt:) Já og þema kvöldsins verður HALLÆRIS8| Já það verður sem sagt Hallærisparty, ég fann dressið í dag, keypti mér hræðilega lummó kjól í spútnik, fanst hann nottla svo skelfilegur þegar ég keypti hann en það er hættulegt hvað mér er farið að þykja hann krúttó:D Var reyndar búin að  ákveða að vera Skáta FORINGi en ég ákvað að vera ekkert að dissa greyið skátana neitt, þeir vinna gott starf og ég held að það leynist nú enn í mér einhverskonar skátagen. En eins og sagt er Eitt sinn skáti ávalt skáti:)

Allavega... Talandi um að vera asni... Litli brói ákvað skyndilega að hætta við að fara með mömmu til Berlínar á morgun og vildi frekar koma og vera hjá fallegu systur sinni... Hver samt fer frekar til Reykjavíkur en Berlínar Gúggú... Ég var reyndr mjög hamingjusöm og vil halda að þetta sé nottla bara útaf því hvursu frábær ég er en grunar nú samt að það sé einhver budda í spilinu en það kemur í ljós... Kanski er hann bara sona sætur að vilja gleðja mig á afmælinu mínu:haha: hehe bjartsýn8| En allavega næ í hann á rútuna á morgun og er nú ansi spennt yfir að hitta han og múttu;) jæja en nóg með það...

                                Heyrðu vá... Eftir vinnu fór ég og náði í Óla á sjóinn, hann var sem sagt í fríi í einhverja tvo tíma í kvöld, þeir voru að landa og fara norður þegar þeir eru búnir að vinna aflan, sem sagt í fyrró en nóg með það.... Við kíktum á Dubliners og hlustuðum á einhvern trúbba i smá stund. Við sátum þarna bara í makindum okkar að spjalla þegar að allt varð vitlaust allt í einu.. fólk stökk útí glugga og eitthvað og við skildum ekki upp né niður... Hvað haldiði að hafi verið í gangi þarna útá götu... Nei ein gella kraup á hnjánum og var að sjúga einvhern drjóla... Pælið hvað ætli gangi að fólki en þetta var ógeðslega fyndið, fólkið reyndist vera í mjög annarlegu ástandi en ekki myndi maður vilja vakna daginn eftir og muna hvað fram fór kvöldinu áður:haha:

 

Það var eitthvað voða mikið sem ég ætlaði nú að skrif en ekki man ég það núna... Jú Gulla, ég dauð sá eftir því í dag að hafa látið mömmu gefa þér bútasaumspeysuna hun hefði hentað svo helvíti vel í halló partyið mitt hehe:haha::haha:

 

Það er búið að panta spánarferðina ... Er sem sagt að fara með tveim íbúum úr Hólmó og við förum þrír starfsmenn með... Þetta verður rosa gaman,,, hlakka ekkert smá til að komast í hita og líka það bara að sjá í sól:haha: Förum 4. Júní og verðum í viku og áfangastaðurinn er Toriveiga.... Ummm HITI jú og sól og ekki má gleyma öllum sætu spánverjunum :haha::haha::haha: 

 

Annað mál ... Ég er búin að fá eina afmælisgjöf jú djók reyndar tvær... mamma gaf mér fataskáp og ég gaf mér æðislega sæt stígvél... Bara sona til að verðlauna mig hvað ég er frábær, þau voru líka ódýr en maður á alltaf að gleðja sjálfan sig með einhverju sona óvæntu...:haha::haha:

 

Ætla líka norður á mánudaginn alveg rétt... Ætla nota tækifærið og sníkja far með rútunni sem mamma fer með heim... Ætla að stoppa í nokkra daga, veit reyndar ekkert hvað lengi en það kemur i ljós... Aðalega smá bara að pússta, það er búið að vera rugl mikið að gera undanfarið og eitthvað minna verið í fríi, bara tjilla hjá múttunni sinna guð hvað ég hlakka til:haha:

Jæja ég held að það sé tímabært að fara að sofa í hausinn á sér.... Þarf að vakna snemma í fyrró og sonna....  og njóta þess að vera í fríi fram á sunnudag:haha::haha::haha:

Kiss og knús

og allir að muna að vera duglegir að kvitta

Birna


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 15:34:17 / Birna

Jæja er í fríi og veit ekkert hvað ég á að gera við mig...

Júhú hvað segja bændur þá???

Allavega allt gott að frétta af þessum bænum helgin liðin og þá er bara beðið eftir þeirri næstu. Ekkert sniðugt hvað tíminn er fljótur að líða og ég verð orðin gamalt skass eftir smá stund. Birna afmælisbarn er nú auðvitað byrjuð að telja niður dagana í afmælið sitt algjör lúði en ég held að ég sé ekki alveg að kveikja á því að öllum pökkunum fylgir aukinn aldur.. en Á afmælum og jólum finn ég barnið í sjálfri mér en það er allavega gott að það sé þarna einhverstaðar:)  En Stelpur taka frá 3. mars því þá er party time:haha:

Allavega það er kominn þriðjudagur og ég er í fríi. Var það líka í gær og ég er bara alveg lost... Ég veit hreinlega ekki hvað er að koma yfir mig... Letin var alveg að drepa mig í gær en síðan staulaðist ég til að fara þrífa húsið ógó dugleg því eins og venjulega var stanslaust partystand hér um helgina en það er allavega orðið fínt núna;) og svo í gærkveldi... TAKIÐ eftir þá skellti skvísan sér út að SKOKKA... já ekkert smá dugleg ég ég bara hef ekki gert þetta síðan... eða ég held ég hafi nú bara aldrei gert þetta áður... allavega ekki svo ég muni eftir8) Það gékk nú bara svo ótrúlega vel að ég skellti mér aftur í morgun þegar ég vaknaði:haha: Er með þvílíka planið að fara gera þetta á hverjum degi bla bla en spurning hvað það endist hehe

Það er súsum ekkert þannig í fréttum... Fórum í innflutningsparty til Þórðar á laugardagskvöldið það var bara helvíti nice...  Kíktum síðan auðvitað í bæinn og dönsuðum frá okkur allt vit, ég hélt ég gæti ekki gengið daginn eftir, maður var búin að draðka svo á glerbrot að það var ekkert sniðugt sko... En það voru ekkert smotterí margir í bænum og þvílíkar raðir díses en þetta var samt bara mjög snellí:P

              ummm jú halló ég er ekki í lagi... Ég týndi ökuskirteininu mínu fyrir ca. 2 árum síðan og hef hreynlega leitað útum alla og alltaf verið með augun opin fyrir ví síðan ég tíndi því... En trassinn ég var nottla ekki búin að sækja um nýtt og var að spá í að fara gera það um leið og ég sæki um nýtt vegabréf... En Halló um leið ég fór að spá í að sækja um nýtt þá fann ég það... Hvar?  í peningaveskinu mínu:$ málið var að ég var svo feit á myndinni að ég hélt að þetta væri gamla kortið... Algjör lúði en þarna græddi ég fimmþúsund kall:haha:

         Get ekki beðið eftir að fara út er alveg að kafna en versta er að maður á eftir að vera skítblankur en það er nú önnur saga hehe. Svo er önnur ferð kanski að skella á en það er til Spánar en segi nú ekkert frá henni fyrr en hún er staðfest, maður er kanski eitthvað að bakka með hana:$

Jæja er að spá í að fara gera eitthvað, kanski maður skelli sér í sund eða eitthvað fyrst maður er orðinn íþróttaálfurinn hehe

Kiss og knús

og muna KVITT KVITT

Birna

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 17 desember